Suðurnesjamenn duglegir að hringja í HSS – “Allir fá bólusetningu”
![hss](https://i1.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2017/03/hss.jpg?resize=620%2C264)
Að gefnu tilefni er áréttað að allir munu fá boðanir í bólusetningu fyrir Covid-19 þegar að þeim kemur í samræmi við forgangsröðun sóttvarnarlæknis og birgðastöðu bóluefnis á landinu. Þetta kemur fram á Facebook-síðu Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja
“Mikið er hringt á heilsugæslustöðvar HSS þessi dægrin en starfsfólk hefur ekki frekari upplýsingar og getur ekki sagt til um hvenær kemur að hverjum einstaklingi,” segir í tilkynningu.