Nýjast á Local Suðurnes

Ed Force One á Keflavíkurflugvelli – Ferðinni heitið á EM í Frakklandi

Mynd: Air Atlanta

Ed Force One, Boing 747-400 flugvél Air Atlanta lenti á Keflavíkurflugvelli fyrir stundu. Vélin er vel merkt bresku hljómsveitinni Iron Maiden, enda notuð í tengslum við tónleikaferðalag sveitarinnar síðasta hálfa árið eða svo, undir dyggri stjórn Bruce Dickinson, söngvara hljómsveitarinnar, sem hefur séð um að fljúga vélinni ásamt flugmönnum Air Atlanta.

Vélin er öll hin glæsilegasta, að innan sem utan, enda hönnuð með þarfir einnar vinsælustu rokkhljómsveitar heims í huga, en í vélinni er meðal annars að finna kokteil-bar og önnur nútíma þægindi sem eru nauðsynleg fyrir rokkstjörnur á tónleikaferðalagi.

Óstaðfestar heimildir Suðurnes.net herma að ferðinni sé heitið til Frakklands, en þar mun starfsfólk Air Atlanta, ásamt gestum á vegum fyrirtækisins njóta þess að horfa á leik Íslands gegn Ungverjalandi á laugardag.

Mynd: Air Atlanta

Mynd: Air Atlanta