Nýjast á Local Suðurnes

Njarðvíkingar semja við landsliðsmann í knattspyrnu

Njarðvíkingar hafa gengið frá samningi við nýjan leikmann, Dani Cadena. Dani er þrítugur að aldri, ættaður frá Spáni en er með tvöfalt ríkisfang Spánskt og frá Nicaragua þar sem hann leikur með landsliði þjóðarinnar. Dani á að baki 14 landsleiki með Nicaragua og hefur skorað í þeim 3 mörk.

Dani kom hingað til lands síðastliðið sumar og lék síðari hluta tímabilsins með KF í 2. deildinni. Dani mun leika sinn fyrsta mótsleik með Njarðvík á fimmtudag þegar liðið tekur á móti Hvíta riddaranum í Lengjubikarnum í Reykjaneshöll.

Dani heldur til heimalandsins í lok mars og tekur þátt í landsliðsverkefni með Nicaragua gegn Haiti í Gold cup.