Nýjast á Local Suðurnes

Nýtt deiliskipulag við Hólagötu – Sjáðu breytingarnar!

Fulltrúi frá JeES arkitektum mætti á fund umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar á dögunum og kynnti fyrir ráðinu frumdrög deiliskipulags fyrir Hólagötu 19-23 í Ytri-Njarðvík.

Gangi skipulagið eftir er ljóst að um töluverða breytingu á ásýnd götunnar er að ræða en skipulagssvæðið er í nálægð við eina fjölförnustu umferðaræð sveitarfélagsins.

Umhverfis- og skipulagsráð ræddi málin og samþykkti heimild til að vinna tillögu að deiliskipulagi í samráði við skipulagsfulltrúa.