Nýjast á Local Suðurnes

Flughótel fær áminningu

Heilbrigðisnefnd Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja hefur áminnt Flughótel Keflavík – H 57 ehf., fyrir að valda ónæði með viftum á þaki hótelsins, sem rekið er undir merkjum Radisson og staðsett við Hafnargötu 57 í Reykjanesbæ.

Fyrirtækið brýtur þannig aðgæslureglu 1. mgr., 8. gr. reglugerðar nr. 724/2008 um hávaða, samkvæmt fundargerð. Þá kemur fram að áminning þessi sé veitt með vísan til þvingunarúrræða 12. gr. reglugerðar nr. 724/2008 um hávaða.

Mynd: Skjáskot / vefur Radisson by Keflavik airport