Nýjast á Local Suðurnes

Tólf kærðir fyrir hraðakstur – Sá sem hraðast ók fær 150.000 króna sekt

Tólf ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók mældist á 162 km. hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km. á klukkustund.  Hans bíður 150.000 króna fjársekt, svipting ökuleyfis í þrjá mánuði og þrír refsipunktar í ökuferilsskrá.

Þá voru allmargir ökumenn kærðir fyrir brot á stöðvunarskyldu, ólöglega lagningu bifreiða sinna, notkun síma án handfrjáls búnaðar og akstur án öryggisbelta. Loks vorur skráningarnúmer fjarlægð af átta bifreiðum sem ýmist höfðu ekki verið færðar til skoðunar eða voru ótryggðar.