Nýjast á Local Suðurnes

Varasamt að vera á ferðinni á skjálftasvæðinu

Lögreglan á Suðurnesjum hefur varað fólk sem hyggur á ferðir um Reykjanes við því að talsvert hefur fallið úr hlíðum fjalla á svæðinu og sprungur stækkað.

Tilkynning lögreglu í heild:

Viðvörun til fóks sem hyggur á ferðir um Reykjanesskagann.
Við viljum benda á að eftir skoðun víðsvegar um Reykjanesskagann hefur komið í ljós að talsvert hefur fallið úr hlíðum fjalla á svæðinu. Varasamt getur verið að ganga um svæðið þar sem mikið af sprungum er víðsvegar og nú þegar fer að snjóa má búast við að fenni jafnvel yfir einhverjar sprungurnar. Komið hefur í ljós að á Djúpavatnsleið hefur fallið grjót sem er á stærð við húsbíl, toppurinn á Keili hefur eitthvað hreyfst til og við brúnina á Krýsuvíkurbjargi er gömul sprunga sem er að stækka mikið þessa dagana. Búast má við að fleiri sprungur séu á þessu svæði sem ekki er vitað um eins og staðan er og er þetta því ábending til fólks um að fara varlega um svæðið.
Eigið góðan dag og farið varlega.