Nýjast á Local Suðurnes

Tvær öflugar til Keflavíkur

Knattspyrnudeild Keflavíkur hefur gert samninga við tvo leikmenn um að leika með liðinu á næstkomandi tímabili.

Madison Wolfbauer er 23 ára fjölhæfur miðjumaður sem mun koma til með styrkja miðsvæði Keflavíkur. Madison spilaði með Bowling Green University og var fyrirliði liðsins þegar það tryggði sér MAC meistaratitilinn í NCAA deildinni.

Sandra Voitane er landsliðskona frá Lettlandi sem hefur leikið 47 leiki með landsliðinu og skorað í þeim 14 mörk. Þá hefur hún verið fyrirliði liðsins. Með landsliðinu hefur hún tvisvar unnið Baltic Cup. Sandra spilar sem bakvörður en getur leyst fleiri stöður á vellinum.

Bæði Madison og Sandra koma til Keflavíkur frá ÍBV hvar þær léku á síðustu leiktíð.