Nýjast á Local Suðurnes

Strandarhlaupið fer fram þann 15. ágúst

Strandarhlaupið (áður Línuhlaup Þróttar Vogum) er hluti af fjölskylduhátíð sveitarfélagsins Voga og fer fram laugardaginn 15. ágúst kl 11:00. Allir hlauparar eru velkomnir, byrjendur sem og lengra komnir, segir heimasíðu Þróttar.

Hlaupið verður ræst við íþróttahúsið í Vogum, Hafnargötu 17 og hlaupnir verða 5 km og 10 km með tímatöku.

Hlaupaleiðir
5 km hlaupið er ræst við Íþróttamiðstöðina. Hlaupið er út Stapaveg þar sem komið er inná malarveg. Eftir 3 km er stuttur utanvegakafli uns komið er inná göngustígakerfi þar sem hlaupið er með sjónum, umhverfis Vogatjörn og að Íþróttamiðstöðinni.

10 km hlaupið er ræst við Íþróttamiðstöðina og liggur um Vatnsleysustrandarveg. 3 km eru á gömlum malarslóða, síðan á Vatnsleysustrandarvegi í fallegu sveitaumhverfi. Að lokum er hlaupinn einfaldur hringur á göngustígum bæjarins að Íþróttamiðstöðinni.

Skráning fer fram hér á hlaup.is. Athugið að skráningargjald hækkar á hlaupadegi og eru þátttakendur því hvattir til að forskrá sig. Forskráning er til miðnættis föstudaginn 14. ágúst 2015. Skráning á keppnisdegi verður í íþróttahúsinu frá kl. 10 til 10:40 fyrir hlaup.

Að hlaupi loknu er þátttakendum boðið upp á hressingu og veitingar í Íþróttamiðstöðinni þar sem verðlaunaafhendingin fer fram.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Þróttar.