Nýjast á Local Suðurnes

Laskaðar lagnir í Grindavík – Eitthvað um rafmagns- og vatnsleysi

Unnið er að því að meta hvort og þá hvenær mögulegt verði að ráðast í viðgerðir á lögnum í Grindavík, en eitthvað er um rafmagnsleysi og vatnsleysi í bænum í kjölfarið á jarðskjálftum undanfarna daga.

Í tilkynningu kemur fram að það teljist ólíklegt eins og ástandið er að það gerist í bráð, enda kalla slíkar viðgerðir á talsvert af mannskap og tækjum og geta tekið langan tíma.

Tilkynningin í heild ásamt kortum:

Starfsfólk HS Veitna vann í fyrri nótt og frameftir degi í gær við að halda uppi rafmagni og hita á húsum í Grindavík. Ljóst er að veitukerfin eru víða löskuð sökum bæði jarðskjálfta og jarðgliðnunar. Seinnipartinn í gær var starfsfólki HS Veitna gert að rýma bæinn og staðan þá var sú að hiti var á húsum í Grindavík að mestu en rafmagn farið af á einstaka stöðum. Nú er búið að taka stöðuna úr stjórnkerfunum og samkvæmt þeim er staðan þessi:

Heitt vatn
Hvað heita vatnið varðar er heitavatnslaust á skyggða svæðinu á meðfylgjandi mynd. Líklegt er að talsvert sé af lekum víðar í kerfinu. Ekki hefur verið unnt að vinna bilanagreiningu á vettvangi vegna neyðarstigs og rýmingar. Sérstaklega er varað við hættu sem skapast af heitu vatni á yfirborði eða í skurðum.

Rafmagn

Hvað rafmagnið varðar er nú rafmagnslaust á þeim stöðum sem eru rauðmerktir á meðfylgjandi kortum. Líklegt er að rafmagnsleysi sé víðar í kerfinu vegna bilana í götuskápum og lágspennustrengjum sem liggja í húsagötum. Ekki hefur verið unnt að bilanagreina á vettvangi vegna neyðarstigs og rýmingar.  Sérstaklega er varað við hættu sem skapast vegna laskaðra raforkumannvirkja og strengja.

HS Veitur hafa öryggi starfsfólks ávallt í fyrirrúmi og vinnur fyrirtækið náið með almannavörnum að því að meta hvort og þá hvenær mögulegt verði að ráðast í viðgerðir. Það verður að teljast ólíklegt eins og ástandið er að það gerist í bráð, enda kalla slíkar viðgerðir á talsvert af mannskap og tækjum og geta tekið langan tíma.