sudurnes.net
Laskaðar lagnir í Grindavík - Eitthvað um rafmagns- og vatnsleysi - Local Sudurnes
Unnið er að því að meta hvort og þá hvenær mögulegt verði að ráðast í viðgerðir á lögnum í Grindavík, en eitthvað er um rafmagnsleysi og vatnsleysi í bænum í kjölfarið á jarðskjálftum undanfarna daga. Í tilkynningu kemur fram að það teljist ólíklegt eins og ástandið er að það gerist í bráð, enda kalla slíkar viðgerðir á talsvert af mannskap og tækjum og geta tekið langan tíma. Tilkynningin í heild ásamt kortum: Starfsfólk HS Veitna vann í fyrri nótt og frameftir degi í gær við að halda uppi rafmagni og hita á húsum í Grindavík. Ljóst er að veitukerfin eru víða löskuð sökum bæði jarðskjálfta og jarðgliðnunar. Seinnipartinn í gær var starfsfólki HS Veitna gert að rýma bæinn og staðan þá var sú að hiti var á húsum í Grindavík að mestu en rafmagn farið af á einstaka stöðum. Nú er búið að taka stöðuna úr stjórnkerfunum og samkvæmt þeim er staðan þessi: Heitt vatnHvað heita vatnið varðar er heitavatnslaust á skyggða svæðinu á meðfylgjandi mynd. Líklegt er að talsvert sé af lekum víðar í kerfinu. Ekki hefur verið unnt að vinna bilanagreiningu á vettvangi vegna neyðarstigs og rýmingar. Sérstaklega er varað við hættu sem skapast af heitu vatni á [...]