Nýjast á Local Suðurnes

Björguðu manni úr sjónum

Karlmanni var bjargað úr sjónum úti fyrir Garði á Suðurnesjum síðdegis í dag. Lögregla og björgunarsveit komu að aðgerðum á vettvangi og er þeim nú lokið.

Vísir greindi fyrst frá.

Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, staðfestir við fréttastofu að maðurinn sé heill á húfi.