Nýjast á Local Suðurnes

Flutningabíll sem valt fullur af “ýmsum efnum”

Vöru­flutn­inga­bíll sem valt í hringtorgi við Fitjar í Njarðvík fyrr í dag var “full­ur af ýms­um efn­um,” eftir því sem verk­efna­stjóri hjá Bruna­vörn­um Suður­nesja segir í sam­tali við mbl.is. 

Á vef mbl.is kemur fram að ekki liggi ná­kvæm­lega fyr­ir hvaða efni séu í bíln­um, en að unnið sé að hreinsun.

Töluverðar umferðartafir eru bæði á Reykjanesbraut og Njarðarbraut vegna þessa, en vegurinn verður lokaður í nokkrar klukkustundir til viðbótar og er umferðastýring í höndum lögreglu.