Nýjast á Local Suðurnes

Drekadalsleikskóli í útboð

Sviðsstjórar umhverfissviðs og fræðslusviðs mættu á fund bæjarráðs Reykjanesbæjar og lögðu fram minnisblað þar sem óskað er eftir heimild að bjóða út byggingu nýs leikskóla í Drekadal í Dalshverfi III, sem nú er í byggingu.

Bæjarráð ræddi málið og heimilar að farið verði í útboð á verkinu. Samkvæmt minnisblaði sviðsstjóranna tveggja er mikilvægt að halda trúnað varðandi kostnaðaráætlun verksins sem unnin er af verkfræðistofunni Glóru.