Nýjast á Local Suðurnes

Von á hálku í morgunsárið

Veðurfræðingar á Veðurstofu Íslands búast við hálku á vegum í fyrramálið, en úrkomubakki gengur yfir sunnan- og vestanvert landið í kvöld og bleytir vegi og gangstéttir.

Það eru líkur á að kólni í nótt þegar rofar til í hægum vindi, segir í athugasemd veðurfræðings á vef veðurstofunnar. Við þessar aðstæður getur hálka myndast og rétt að vera á varðbergi gagnvart henni í fyrramálið.