Hluti efri byggða Keflavíkur án rafmagns í nótt
![ljosleidari lagnir rafmagnslagnir](https://i1.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2016/01/conduit-166802_1280.jpg?resize=620%2C264)
Til stendur að fara í viðhaldsvinnu í dreifistöð HS Veitna við Heiðarholt í nótt.
Það er því óhjákvæmilegt að fasteignir sem standa í nágrenni við stöðina verði án rafmagns á meðan á vinnu stendur. Gert er ráð fyrir því að rafmagn verði tekið af kl. 00:00 á miðnætti og rafmagn verði komið á aftur eigi síðar en kl. 05:00 að morgni 4. desember.
Í tilkynningu er að venju beðist velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda viðskiptavinum HS Veitna.