Flutningabíll sem valt fullur af “ýmsum efnum”
Vöruflutningabíll sem valt í hringtorgi við Fitjar í Njarðvík fyrr í dag var “fullur af ýmsum efnum,” eftir því sem verkefnastjóri hjá Brunavörnum Suðurnesja segir í samtali við mbl.is.
Á vef mbl.is kemur fram að ekki liggi nákvæmlega fyrir hvaða efni séu í bílnum, en að unnið sé að hreinsun.
Töluverðar umferðartafir eru bæði á Reykjanesbraut og Njarðarbraut vegna þessa, en vegurinn verður lokaður í nokkrar klukkustundir til viðbótar og er umferðastýring í höndum lögreglu.