Nýjast á Local Suðurnes

Gæti gosið í næstu viku

Sérfræðingar Veðurstofunnar telja að haldi kvikusöfnun áfram með sama hraða og nú er við Svartsengi muni magn kviku ná þeim þröskuldi í næstu viku sem talið er að þurfi til að koma af stað næsta kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá stofnuninni, þar segir að magn kviku sem safnast hafði við Svartsengi áður en fyrri gos hófust hafi verið á bilinu átta til þrettán milljón fermetrar. Verið er að vinna ný reiknilíkön til að fá nánari mynd af því magni sem safnast hefur.

Ekki er talin ástæða til að auka hættustig á svæðinu að svo stöddu og er hættumat Veðurstofunnar því óbreytt frá því síðast.