Nýjast á Local Suðurnes

Starfsmaður leikskóla grunaður um að hafa beitt barn ofbeldi

Starfsmaður í leikskólanum Sólborg í Sandgerði hefur verið leystur frá störfum, en viðkomandi er grunaður um að hafa beitt barn í skólanum ofbeldi.

Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, staðfesti atvikið í samtali við RÚV og sagði málið hafa verið kært til lögreglu og rannsóknin sé langt komin.