Nýjast á Local Suðurnes

Handtekinn í átta buxum og tíu peysum

Ferðamaður sem vildi ekki greiða gjald til þess að innrita tösku sína í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í vikunni greip til þess ráðs að klæða sig í átta buxur og tíu boli eða peysur úr töskunni til að sleppa við gjaldið.

Manninum var vísað frá flugi og gerð grein fyrir því að hann gæti skapað hættu fyrir aðra farþega þar sem hann gæti tæpast hreyft sig þar sem hann væru svo dúðaður í fatnað. Þessu snöggreiddist maðurinn, sló í borð og lét öllum illum látum svo lögreglan á Suðurnesjum var kvödd á staðinn. Hann var handtekinn og færður á lögreglustöð.