Nýjast á Local Suðurnes

Vilja byggja upp innviði fyrir rafbíla

Framtíðarnefnd Reykjanesbæjar leggur til að hafin verði vinna við uppbyggingu innviða fyrir rafbíla í Reykjanesbæ. Aðstoðarmaður bæjarstjóra fór yfir upplýsingar og kynnti tillögu að útfærslu vegna uppbyggingar innviða fyrir rafbíla í sveitarfélaginu fyrir nefndinni á síðasta fundi.

Málið verður tekið fyrir á fundi bæjarstjórnar í nóvember.