Gríðarlega mikilvægur grannaslagur í Garði á laugardag
![njardv fotb](https://i1.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2017/06/njardv-fotb.jpg?resize=620%2C264)
Víðismenn taka á móti Njarðvíkingum í 20. umferð 2. deildarinnar í knattspyrnu á laugardaginn. Víðismenn eru í þriðja sæti deildarinnar með 34 stig, fjórum stigum á eftir Magna sem er í öðru sæti, á meðan Njarðvíkingar sitja á toppnum með 41 stig.
Leikurinn á laugardag er því afar mikilvægur fyrir bæði lið, en með sigri geta Njarðvíkingar svo til tryggt sér sæti í Inkasso-deildinni á næsta tímabili, en landi Víðismenn stigunum þremur eiga þeir sömuleiðis möguleika á að fara upp um deild.
Liðin hafa leikið tvo leiki í sumar, úrslitaleik B-deildar Lengjubikarsins og einn í deildinni og höfðu Víðismenn sigur í báðum leikjum sem voru stórskemmtilegir á að horfa.