Nýjast á Local Suðurnes

Mótmæla lokun pósthúss

Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar mótmælir harðlega tímabundinni lokun pósthússins í Grindavík, en það er lokað tímabundið vegna Covid-19 og þurfa Grindvíkingar að nálgast sendingar á næsta pósthús sem er í Reykjanesbæ.

Á sama tíma og almannavarnir hvetja til netverslunar og ferðast ekki milli landshluta þurfa Grindvíkingar að mæta til Reykjanesbæjar til að senda og sækja pakka. Það er óviðunandi þjónusta fyrir 3.500 manna bæjarfélag, segir í bókun bæjarstjórnar vegna málsins.

Ef samstarf Póstsins og Landsbankans býður ekki upp á að halda pósthúsinu opnu þarf Pósturinn að skoða aðra samstarfsmöguleika eða finna skapandi lausnir til að þjónusta Grindvíkinga t.d. með aukinni heimsendingarþjónustu bæði til að afhenda pakka sem og að sækja sendingar, segir jafnframt.

Bæjarstjórn hefur óskað eftir svörum frá Póstinum.