Nýjast á Local Suðurnes

Engin virkni en ótímabært að lýsa yfir goslokum

Virkni eldgossins við Hagafell vvirðist hafa dottið niður seint í nótt eða mjög snemma í morgun, en enn er þó ótímabært að lýsa yfir goslokum, samkvæmt tilkynningu Veðurstofunnar.

Tilkynningin í heild:

Vísindamenn sem eru í flugi yfir gosstöðvunum staðfesta að engin gosvirkni er sjáanleg og virðist vera slokknað í gígum en glóð er enn sjáanleg í hraunbreiðu. Þetta staðfestist einnig af starfsmanni Eflu sem er á Sýlingarfelli. Virknin virðist hafa dottið niður seint í nótt eða mjög snemma í morgun. Þó er enn mögulegt að hraunrennsli sé í lokuðum rásum og því ótímabært að lýsa yfir goslokum.