Nýjast á Local Suðurnes

Enn dregur úr krafti gossins

Áfram dregur úr krafti gossins. Á nýjum yfirlitsmyndum af svæðinu sést að nú gýs úr tveimur gígum. Mest virkni er í gígnum sem er beint austur af Sýlingarfelli og er syðsti gígurinn af þessum þremur sem voru virkir í gær.

Hraun heldur áfram að flæða í austur út frá eldstöðvunum, en einnig hefur hrauntunga runnið í vestur fyrir norðan Stóra-Skógsfell. Engin breyting er sjáanleg á hraunjaðrinum sem er lengst í suður. Á gervitunglamyndum sem teknar voru í gærkvöldi sést að hraunbreiðan sem hefur myndast er um 3,7 km2 að flatarmáli.

Í dag verður vestlæg átt og möguleiki að gasmengun berist yfir höfuðborgarsvæðið um tíma. Vindur verður norðvestlægari í kvöld og á morgun og þá fer mengunin til suðausturs og út á haf.