Nýjast á Local Suðurnes

Íbúum hleypt inn á skilgreint svæði

Lög­reglu­stjór­inn á Suður­nesj­um hef­ur tekið ákvörðun um að hleypa íbú­um inn á skil­greint svæði í Grinda­vík. Svæðið sem um ræðir er aust­an meg­in við Vík­ur­braut í Grinda­vík, að Ægis­götu, en svæðið má sjá á kortinu hér fyrir ofan.

Íbúar og fyr­ir­tæki aust­an meg­in við Vík­ur­braut og norðan við Aust­ur­veg eru í fyrsta hópi að því er fram kem­ur í til­kynn­ingu frá lög­regl­unni. 

Lög­regla stýr­ir og skipu­legg­ur aðgerðirn­ar, segir í tilkynningu.

Íbúar sem fá að fara inn til Grinda­vík­ur eiga að koma á söfn­un­arstaðinn sem er bíla­stæðið við gossvæðið, við Fagra­dals­fjall.

Það þarf að koma um Suður­strand­ar­veg að aust­an til Grinda­vík­ur að söfn­un­arstað. Þar fer fram upp­lýs­inga­taka og skrán­ing, ásamt því að fólk fær frek­ari leiðbein­ing­ar. Frá söfn­un­arstað verður ekið í bíl­um viðbragðsaðila inn í bæ­inn.

Heim­ild til þess að fara inn í bæ­inn er ábyrgðar­hluti og ekki létt­væg ákvörðun og þýðir alls ekki að svæðið sé að öðru leyti opið fyr­ir um­ferð. Þetta verður skipu­lögð og stýrð aðgerð und­ir stjórn lög­regl­unn­ar.

Íbúar við þess­ar göt­ur eru í fyrsta hópi:

Vík­ur­hóp, Norður­hóp, Hóps­braut, Suður­hóp, Efra­hóp, Aust­ur­hóp, Miðhóp, Stamp­hóls­veg­ur, Víðigerði, Aust­ur­veg­ur, Mána­gata, Mána­sund, Mána­gerði, Tún­gata, Arn­ar­hlíð, Akur og Stein­ar. 

Fyr­ir­tæki við þess­ar göt­ur eru í fyrsta hópi:

Hafn­ar­götu, Selja­bót, Miðgarð, Rán­ar­götu, Ægis­götu (sunn­an við Selja­bót), Garðsveg­ur, Ver­braut, Vík­ur­braut og vi hafn­ar­svæðið.

Til­mæli til at­hug­un­ar fyr­ir íbúa:

  • Ekki fara ef þú þarft ekki nauðsyn­lega að fara
  • Aðeins verður leyfi fyr­ir einn aðila að fara inn á svæðið, fyr­ir hvert heim­ili
  • Skráið niður lista yfir það sem þið hygg­ist sækja áður en lagt er af stað
  • Munið eft­ir húslykli
  • Búr fyr­ir gælu­dýr ef þörf er á
  • Poka eða annað und­ir muni
  • Íbúar hafa stutt­an tíma inni á heim­il­inu.
  • Þau sem fara mega ekki vera með bráðaof­næmi fyr­ir dýr­um því það verða gælu­dýr með í för í baka­leiðinni.
  • Þetta er ein­göngu til þess sækja mjög mik­il­væga hluti s.s. gælu­dýr, lífs­nauðsyn­leg lyf, hugs­an­lega vega­bréf eða aðra ómiss­andi hluti fyr­ir heim­il­is­fólk
  • Heim­ilt verður að keyra öku­tæki sem skil­in voru eft­ir við rým­ingu, út af svæðinu frá Grinda­vík, en ein­göngu í fylgd viðbragðsaðila