Nýjast á Local Suðurnes

Á fimmtahundrað Suðurnesjamenn komnir í sóttkví

Einstaklingum sem smitaðir eru af kórónuveirunni fjölgaði einungis um einn undanfarinn sólarhring á Suðurnesjum samkvæmt nýjustu tölum á vef Embættis landlæknis og Almannavarna, covid.is. Þannig eru nú 30 smit staðfest á Suðurnesjum. Alls sæta 420 einstaklingar sóttkví á Suðurnesjum.

 Enn er forgangsraðað í sýnatökur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, eins og annarsstaðar á landinu, eftir tilmælum Landlæknis. Ekki er hægt að taka sýni hjá öllum sem uppfylla þau skilyrði sem til þarf og eru sýnatökur háðar mati læknis. Sofnunin hefur framkvæmt 300 sýnatökur undanfarnar daga.

Suðurnesjamenn eru hvattir til að fylgja HSS á Facebook, en þar eru birtar nýjustu fréttir frá stofnuninni.