Nýjast á Local Suðurnes

Stálu númeraplötum af bifreiðum í skjóli nætur

Svo virðist sem óprúttnir aðilar hafi farið um íbúðahverfi í Innri-Njarðvík í nótt og stolið númeraplötum af bifreiðum. Þetta kemur fram í umræðum í íbúahópi á Facebook.

Málshefjandi segist vita um þrjú dæmi hið minnsta og fleiri bætast við í umræðum. Athyglisvert er að flestar plöturnar virðast vera af samskonar bílum, samkvæmt ummælum við þráðinn. Þá eru íbúar í nágrenninu beðnir um að skoða upptökur úr eftirlitsmyndavélum þannig að hafa megi hendur í hári þessara aðila.