Nýjast á Local Suðurnes

Dunkin‘ Donuts lokar sölustöðum

Kleinuhringjasölu Dunkin‘ Donuts við Fitjar og í flugstöð Leifs Eiríkssonar hefur nú verið lokað ásamt öðrum stöðum fyrirtækisins hér á landi. Þetta staðfestir Sigurður Karlsson, forstjóri Basko, í samtali við Vísi.is.

 „Við erum búin að verðleggja okkur svipað og í Danmörku og í Svíþjóð, en það var ekki nóg. Við treystum okkur ekki í að hækka verð svo við tókum ákvörðun um það að loka,“ sagði Sigurður í samtali við Vísi.

Kleinuhringir Dunkin Donuts munu þrátt fyrir þetta ekki hverfa alveg frá Íslandi en þeir verða áfram seldir í verslunum Basko, 10/11 og Kvikk, frá og með næsta mánuði.