Nýjast á Local Suðurnes

Flaggað í Suðurnesjabæ – Tvö ár frá sameiningu

Fánum verður flaggað í Suðurnesjabæ í dag, en tvö ár eru síðan sveitarfélagið tók til starfa við sameiningu Garðs og Sandgerðis.

Á þeim tveimur árum sem liðin eru frá því að Suðurnesjabær tók til starfa hefur verið unnið markvisst að því að móta nýtt sveitarfélag og þjónustu þess. Þau verkefni hafa gengið vel, en er ekki lokið, segir í tilkynningu.

Almennt eru sveitarfélög stöðugt að þróa starfsemi sína og þjónustu en mótun á nýju sameinuðu sveitarfélagi felur í sér ýmsar áskoranir og sem verða verkefni næstu ára hjá Suðurnesjabæ, segir jafnframt.