Nýjast á Local Suðurnes

Gerðu sér dagamun á veitingastað án þess að greiða reikninginn

Tveir karlmenn sem gerðu sér dagamun á veitingastað í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina stungu af án þess að greiða reikning upp á rúmlega 22 þúsund krónur.

Lögregla hafði upp á mönnunum og handtók þá. Þeir eiga kæru um fjársvik yfir höfði sér, auk bótakröfu frá veitingastaðnum.