Sjóslys við Garðskaga – Maður féll fyrir borð á skipi
Leit stendur nú yfir að manni sem hafði fallið fyrir borð á skipi norðvestur af Garðskaga. Tvær þyrlur landhelgisgæslunnar taka þátt í leitinni og allur tiltækur floti björgunarsveita.
Landhelgisgæslan vildi ekki veita frekari upplýsingar þegar mbl.is leitaði til hennar en segir tilkynningu væntanlega. Þá segir í frétt Vísis að varðskipið Þór sé einnig væntanlegt.