Nýjast á Local Suðurnes

Kraftur óskar eftir kröftugum sjálfboðaliðum – Allir geta tekið þátt!

Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstanendur,  ætlar að perla armbönd með Suðurnesjamönnum, laugardaginn 30. september, í húskynnum Rauða krossins Smiðjuvöllum (við Iðavelli), Keflavík,  milli kl. 13 – 17.

Armböndin eru með áletruninni „Lífið er núna“ og eru auðveld í samsetningu svo allir geta tekið þátt, börn sem fullorðnir.

Kraftur óskar eftir kröftugum sjálfboðaliðum til að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni. Öll armbönd eru perluð í sjálfboðavinnu og því mikil hugsjón bak við hvert armband. Allur ágóði af sölu armbandanna rennur til Krafts – stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbmein og aðstandendur.
Sjálfboðaliðar geta komið á milli kl. 13 og 17 á laugardaginn í Rauðakrosshúsið við Iðavelli og perlað með Krafti á þessum tíma.

Vel verður tekið á móti sjálfboðaliðum boðið verður upp á léttar veitingar fyrir alla.