Nýjast á Local Suðurnes

Dópaður með ársgamalt barn í bílnum

Ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af um helgina vegna gruns um fíkniefnaakstur var með rúmlega ársgamalt barn sitt í bifreiðinni. Þá ók hann sviptur ökuréttindum. Maðurinn viðurkenndi neyslu fíkniefna og var handtekinn og fluttur á lögreglustöð. Málið var tilkynnt barnaverndaryfirvöldum.

Annar ökumaður, einnig grunaður um fíkniefnaakstur, viðurkenndi að vera með skráningarmerki af annarri bifreið á  sinni auk þess sem hún var ótryggð. Þá var hann ekki með ökuskírteini.

Loks barst lögreglu tilkynning um ofurölvi ökumann sem borgarar höfðu stöðvað við akstur í umdæminu. Hann var handtekinn og færður á lögreglustöð.