Björguðu kettinum Nölu úr ræsi á Ásbrú
![kisa asbr](https://i1.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2019/12/kisa-asbr.jpg?resize=620%2C264)
Allt er gott sem endar vel, segir máltækið, og þannig fóru málin á Ásbrú þegar kettinum Nölu var bjargað úr regnvatsnlögn í hverfinu í kvöld. Íbúi á Ásbrú bað um aðstoð samborgara á íbúasíðu Ásbrúar á Facebook og er óhætt að segja að fólk hafi brugðist hratt og vel við og sýnt samhug í verki.
Nölu var bjargað úr prísundinni innan við klukkustund eftir að greint var frá málinu á íbúasíðunni Íbúar á Ásbrú – Keflavíkurflugvelli, þegar hugrakkur einstaklingur gerði sér lítið fyrir og skreið inn í ræsið og náði í köttinn. Á íbúasíðunni má sjá umræður um málið og myndbönd af björgunarstörfum.