Glæsileg Sólseturshátíð framundan – Sjáðu dagskránna!

Sólseturshátíðin í Garði verður formlega 23. – 26. júni, þó dagskrá hefjist mánudaginn 20. júní í íþróttamiðstöð Garðs með karlakvöldi í sundlaug. Síðan rekur hver viðburðurinn annan alla vikuna.
Sólseturshátíð var haldin í fyrsta skipti árið 2005 og er nú árlegur viðburður í Garði, sem Garðbúar geta verið stoltir af. Sólseturshátíðin er fjölskylduhátíð, haldinn á Garðskaga við góðar aðstæður, fallegt umhverfi með fjölbreyttri dagskrá. Má þar nefna stuttar gönguferðir, menningar- og sögutengda fræðslu fyrir börn og fullorðna, fjöruferð fyrir börnin, leiki og leiktæki, tónlistaratriði, kveiktur varðeldur og málverkasýningar.
Á Garðskaga er góð aðstaða fyrir tjaldbúa, tjaldvagna og húsbíla. Snyrting, rennandi vatn og rafmagn er til staðar.
Sólseturshátíðin 2016, verður dagana 23. júní til 26. júní.