Nýjast á Local Suðurnes

Alexander Veigar gengur til liðs við Grindavík

Alexander Veigar Þórarinsson hefur gengið til liðs við uppeldisfélag sitt Grindavík á nýjan leik en hann skrifaði undir tveggja ára samning við Grindvíkinga í gærkvöldi. Alex lék með Grindavík á árunum 2005-2008 en hefur síðan leikið með Fram, Reyni Sandgerði, BÍ/Bolungarvík og nú síðast með Þrótti sem hann hjálpaði upp í úrvalsdeild á liðnu sumri.

Alexander Veigar er ekki fyrsti leikmaður Grindavíkur sem kemur til baka á heimaslóðir fyrir komandi tímabil en Gunnar Þorsteinsson samdi við Grindavík í nóvember, eftir að hafa leikið með ÍBV undanfarin ár.