Nýjast á Local Suðurnes

Skítaveður á Suðurnesjum – Útihús lagðist saman

Myndin tengist fréttinni ekki beint - Mynd: Björgunarsveitin Suðurnes

Lögreglan á Suðurnesjum biðlar til íbúa á svæðinu að tryggja lausamuni, en mjög hvasst er í veðri þessa stundina. Björgunarsveitir hafa verið ræstar út vegna fjúkandi hluta, segir í tilkynningu sem sjá má hér fyrir neðan.

Skítaveður og hífandi rok.
Viljum ítreka beiðni okkar til íbúa og sérstaklega verktaka á svæðinu að tryggja alla lausamuni. Við vorum að ræsa björgunarsveit út okkur til aðstoðar vegna fjúkandi hluta í umdæminu en til dæmis var garðskúr sem fauk og útihús í Höfnum lagðist saman.