Svipting ökuleyfis og 130.000 króna sekt fyrir að aka á 147 km/h
Sextán ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni.
Sá sem hraðast ók mældist á 147 kílómetra hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km. á klukkustund. Ökumaðurinn var ekki með ökuskírteini sitt meðferðis. Hans bíður 130.000 króna fjársekt, svipting ökuleyfis í einn mánuð og þrír refsipunktar í ökuferilsskrá.
Þá var nokkuð um að ökumenn sinntu ekki stöðvunarskyldu eða töluðu í síma án handfrjáls búnaðar.