Nýjast á Local Suðurnes

Á 146 km. hraða á Reykjanesbraut – Greiddi 130.000 króna sekt á staðnum

Ökumaður mældist á 146 kílómetra hraða á Reykjanesbraut um helgina. Um var að ræða erlendan ferðamann og greiddi hann sektina, sem er 130.000 krónur samkvæmt sektarreikni Samgöngustofu, á staðnum. Enn fremur sektaði lögreglan á Suðurnesjum fjóra til viðbótar fyrir of hraðan akstur, einnig á Reykjanesbraut.

Þá voru fjórir ökumenn færðir á lögreglustöð vegna gruns um fíkniefnaakstur, þar af einn sem hafði áður verið sviptur ökuréttindum. Sýnatökur staðfestu neyslu þeirra á fíkniefnum.