Isavia ræður geimfara til starfa – Markaðsetja prófanir í hliðarvindi á Keflavíkurflugvelli
Isavia hefur ráðið Bjarna Tryggvason, sem er best þekktur sem fyrsti íslenski geimfarinn, eða sá eini, til þess að vinna með fyrirtækinu að þróun á flugvélaprófunum á Keflavíkurflugvelli. Nokkrar umsóknir frá stærstu flugvélaframleiðendum heims, Airbus og Boeing liggja þegar fyrir, en fyrirtækin vilja nýta Keflavíkurflugvöll til prófana á Airbus 330 í sumar og Boeing 737 Max í haust, ásamt nýju 787-10.
Flugprófanir hafa verið nokkuð algengar á Keflavíkurflugvelli í gegnum tíðina og stutt er síðan flugvélaframleiðandinn Airbus prófaði nýja A350-900 vél sína á vellinum. Stjórnendur Isavia höfðu þó ákveðið að hætta flugprófunum á vellinum eftir að gefið hafði vilyrði fyrir því að kínverskur framleiðandi fengi að framkvæma flugprófun vegna nýrrar vélar sem þeir hafa þegar tekið í notkun.
„Þar sem Isavia hafði tekið fyrir flugprófanir bauðst ég til þess að koma og aðstoða Isavia við að skoða þau vandamál sem tengdust prófunum, enda var ljóst að ef Kínverjarnir hefðu lent í vandamálum þá myndi kannski verða lokað á flugprófun hér fyrr fullt og allt“ sagði Bjarni í samtali við mbl.is.
„Kínverjarnir hafa verið með allt á hreinu, en smá hnökrar tengdust tungumálaörðugleikum, en nú eru þeir hér og bíða bara eftir vindi sem er ótrúlegt, þetta er hugsanlega mesta kyrrð sem ég hef nokkurn tíma upplifað á Íslandi í tvær heilar vikur,“ sagði Bjarni.
Í frétt mbl.is kemur fram að í næstu viku verði haldin alþjóðleg ráðstefna flugvélaframleiðenda í Seattle í Bandaríkjunum og á þeim fundi stendur til að upplýsa um flugprófunaraðstæður og skilyrði á Keflavíkurvelli.