Nýjast á Local Suðurnes

Thorsil gerir 5 milljarða króna alhliða samning um framkvæmdir við kísilver

Mannvit hefur gert samning við Thorsil ehf. um byggingu kísilvers Thorsils í Helguvík. Samningurinn er svokallaður EPCM samningur, þ.e. alhliða samningur um hönnun, innkaup og umsjón framkvæmda. Verðmæti samningsins er um 4,9 milljarðar króna og nær framkvæmd hans yfir þrjú ár. Fyrirvari er í samningnum um endanlega fjármögnun byggingarframkvæmda Thorsils.

Með þessum samningi hefur Mannvit tekið að sér að sjá um verkfræðilegan undirbúning að byggingu kísilvers fyrirtækisins í Helguvík, hafa umsjón með útboðum og gerð samninga við tækjaframleiðendur og verktaka, ásamt því að hafa yfirumsjón með framkvæmdum á meðan á byggingu kísilversins stendur.

„Við hjá Mannviti erum afskaplega ánægð og stolt yfir gerð þessa samnings. Þetta er einn umfangsmesti samningur á sviði orkufreks iðnaðar sem íslenskt verkfræðifyrirtæki hefur gert fram til þessa, og við framkvæmd hans mun nýtast sú reynsla og tækniþekking sem orðið hefur til hér á landi við áratuga þjónustu við fyrirtæki á sviði orkufreks iðnaðar,“ sagði Sigurhjörtur Sigfússon, forstjóri Mannvits í tilefni af undirritun samningsins.

„Eftir ítarlegan undirbúning og greiningu hefur Thorsil valið þá leið að byggja kísilver sitt með EPCM fyrirkomulagi. Með því næst fram talsvert hagræði sem Thorsil getur nýtt sér, einkum í ljósi þess að hjá fyrirtækinu, ráðgjöfum þess og tækniteymi er fyrir hendi mikil þekking á kísilmálmiðnaðinum. Ennfremur býr Mannvit yfir þekkingu og reynslu af því að stýra sambærilegum framkvæmdum. Thorsil hefur átt gott og farsælt samstarf við Mannvit við undirbúning verkefnisins og ríkir ánægja hjá fyrirtækinu með samninginn“ segir John Fenger, stjórnarformaður Thorsil.

Á mynd frá vinstri: Eyjólfur Árni Rafnsson, framkvæmdastjóri iðnaðar hjá Mannviti, Sigurhjörtur Sigfússon, forstjóri Mannvits, Hákon Björnsson, framkvæmdastjóri Thorsil og Gunnar Jónsson, lögmaður.