Vopnaður á ferðinni með fíkniefni

Ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af í gærkvöld vegna gruns um fíkniefnaakstur reyndist vera með meint fíkniefni í bifreiðinni. Um var að ræða hvítt efni svo og kannabis. Í bifreiðinni fundust einnig tveir hnífar og haglabyssuskot.
Þá fann lögregla kannabisefni í húsnæði í umdæminu þegar farið var í húsleit í gær að fenginni heimild. Í annari húsleit sem gerð var í fyrradag, að fenginni heimild, fannst svo umtalsvert magn af kannabisefnum.
Loks fann lögregla kannabisefni á eldhúsborði í heimahúsi, en þangað höfðu lögreglumenn verið kvaddir vegna heimilisófriðar.