Nýjast á Local Suðurnes

Panama- og Tortólafyrirtæki í Garði – “Ætluðum að sigra heiminn”

Fiskverkandi og kaupsýslumaður í Garði, kemur fyrir í Panamaskjölunum svokölluðu, en hann á, eða átti, hlut félaginu Huskon International, sem skráð er í Panama. Fiskverkandinn átti einnig hlut í fyrirtækinu Arctic Circle Invest, sem skráð er á Tortólu. Gögn í upphaflegu Panamagögnunum sýndu að fjölmörg fyrirtæki tengdust heimilisfangi fiskverkandans í Garði, það leiðréttist þó nokkrum dögum síðar.

Fiskverkandinn, sem meðal annars rekur fiskverkunina Cod ehf., hér á landi, segir í samtali við Reykjavík Media, að fyrrnefnda fyrirtækið hafi verið stofnað til að selja skip sem keypt voru í Rússlandi. Hann segir að það hafi selt alls þrjú skip meðan það starfaði. Eitt skipið var selt á 4,25 milljónir evra, rúman hálfan milljarð króna, til norsks skipafélags árið 2008.

„Við vorum með viðskipti í Rússlandi og þetta voru ráðleggingar innan úr bankakerfinu [Landsbankanum] að fara þessa leið. Við keyptum bara skip og seldum í gegnum þetta félag. Við vorum ekki með neina útgerð í þessu. Þetta voru þrjú skip sem við seldum, eitt fyrir hrun og annað eftir hrun.“ Segir fiskverkandinn.

Fiskverkandinn úr Garði segir að skattaleg áhrif af notkun félagsins hafi ekki verið nein; félagið hafi greitt skatta á Íslandi.

„Við gerðum þetta svona til að sleppa við að setja skipin á íslenskan fána. Það hefði kostað augun úr að setja skipin á íslenskan fána. Það stóð ekki til að selja skipin hér innanlands.“

Síðrnefnda félagið stofnaði fiskverkandinn með nokkrum öðrum íslenskum fjárfestum árið 2007. Félagið var stofnað í gegnum eignastýringu Landsbankans í Lúxemborg og að sögn tapaði fiskverkandinn persónulega talsverðum fjármunum á því.

„Þetta var félag sem var í eignastýringu í  Landsbankanum í Lúxemborg. Við áttum þetta nokkrir félagarnir. Það var í einhverjum hlutabréfaviðskiptum. Við ætluðum að sigra heiminn en það gekki ekki eftir. Þetta fór lóðbeint á hausinn í hruninu. Það var maður í eignastýringunni í Lúxemborg sem sá um þetta fyrir okkur.“