Nýjast á Local Suðurnes

Álagningarskrá Reykjanesbæjar liggur frammi á bæjarskrifstofunum

Álagningu opinberra gjalda árið 2015 lýkur í dag föstudaginn 24. júlí. Álagningarskrá Reykjanesbæjar verður lögð fram í dag í heild sinni og mun liggja frammi á bæjarskrifstofunum í 14 daga.

Kærufrestur er í 30 daga frá birtingu, vilji menn kæra álagninguna, segir á heimasíðu Reykjanesbæjar.