Malbikað fyrir 100 milljónir króna í Reykjanesbæ
Rúmlega 100 milljónir króna hafa verið lagðar í malbikunarframkvæmdir í Reykjanesbæ í sumar auk þess sem Smáratún hefur algjörlega gengið í endurnýjun lífdaga, í samstarfi við HS Veitur. Allt burðarefni verður endurnýjað, allar lagnir sem og yfirborð götu. Þær framkvæmdir standa enn.
Þær götur sem hafa fengið nýtt malbiksyfirlag í Reykjanesbæ eru:
- Veturgata, frá Túngötu að Heiðarbraut
- Hringbraut, frá Aðalgötu að Skólavegi og frá gatnamótum við þjóðbraut
- Tjarnargata frá Kirkjuvegi að Hringbraut
- Vallarbraut, að leikskólanum Hjallatúni
- Fitjabraut, frá Sjávargötu að Fitjabraut 30
- Njarðarbraut, frá Bergási fram yfir gatnamót við Stekk
Þá hafa umtalsverðar endurbætur verið gerðar á malbiksyfirlagi Reykjanesbrautar í umsjón Vegagerðarinnar.