Nýjast á Local Suðurnes

Hefja úthlutun í nýju hverfi síðsumars

Jarðvinna við Dalshverfi 3, nýtt hverfi í Innri-Njarðvík, er í útboðsferli um þessar mundir, en hverfið er skipulagt undir 300 íbúðir og verður klárt til úthlutunar síðsumars.

Þetta kemur fram í pistli sem formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar ritaði og birtur er á vef VF. Þar kemur einnig fram að á næstu misserum verði áhugasömum boðið í umhverfis- og skipulagsrölt um áhugaverð svæði í bænum.