Nýjast á Local Suðurnes

Mosabruni við Nesveg – Um 100 fermetra flötur brann

Mosabruni 4.8.2015

Slökkvilið Grindavíkur var kallað út skömmu eftir hádegi í dag þar sem kviknað hafði í mosa í hrauninu norðan við Nesveginn, um 200 metra frá veginum á móts við afleggjarann niður í Bót.

Greiðlega gekk að slökkva eldinn þar sem slökkviliðið gat lagt slöngur yfir hraunið og að eldinum. Talið er að um 100 fermetra flötur hafi brunnið.

Ekki er kunnugt um eldsupptök en mosinn í hrauninu er mjög þurr og því þarf mjög lítið til að koma bruna af stað.

Mynd: Hjörtur Gíslason – grindavik.is