Nýjast á Local Suðurnes

Rúmlega 700 skjálftar það sem af er degi – Sá stærsti mældist 4,5

Mynd: Visit Reykjanes

Í nótt hófst jarðskjálftahrina norðan við Grindavík og hafa rúmlega 700 jarðskjálftar mælst það sem af er degi.

Stærsti skjálftinn mældist kl. 8:18 og var 4,5 að stærð og sá næststærsti varð kl. 5:35 og mældist 3,9 að stærð. Veðurstofunni hafa borist tilkynningar um að þessir skjálftar hafa fundist víða á Reykjanesskaga og Höfuðborgarsvæðinu.

Áfram er talsverð smáskjálftavirkni á svæðinu og ekki er útilokað að skjálftar af svipaðri stærð og í morgun eigi sér stað aftur. Síðast mældust skjálftar af svipaðri stærðargráðu á Reykjanesskaga í júlí á þessu ári, segir á vef Veðurstofunnar.