Nýjast á Local Suðurnes

Erfitt að miða aðgang fólks að gossvæðinu við samkomutakmarkanir

Erfitt getur reynst að takmarka aðgang fólks að gossvæðinu við Fagradalsfjall og miða við þær samkomutakmarkanir sem taka gildi á miðnætti.

Þetta kom fram í máli Rögnvalds Ólafssonar hjá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Hann sagði þó að þessi mál væru í skoðun.